Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao lögðu Prievidza í FIBA Europe Cup, 87-66.
Á 17 mínútum spiluðum skilaði Tryggvi Snær 9 stigum, 3 fráköstum og 2 vörðum skotum.
Leikurinn var sá síðasti í fyrri riðlakeppni keppninnar, en Tryggvi Snær og félagar fóru nokkuð örugglega áfram í næstu umferð með sex sigra og ekkert tap.