Martin Hermannsson og Alba Berlin lögðu Ulm í dag í þýsku úrvalsdeildinni, 96-88.
Á tæpum 29 mínútum spiluðum skilaði Martin 11 stigum, frákasti, 11 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.
Byrjun tímabilsins hefur verið nokkuð brösug hjá Alba Berlin, en þeir eru eftir leikinn í 11. sætinu með þrjá sigra og fjögur töp eftir fyrstu sjö umferðirnar.