Íslenska kvennalandsliðið mun í kvöld kl. 19:30 mæta Slóvakíu í Ólafssal í þriðja leik sínum í undankeppni EuroBasket 2025.
Fyrstu tvo leiki undankeppninnar lék liðið fyrir ári síðan, en þá tapaði liðið fyrir Rúmeníu ytra og Tyrklandi heima. Báðir voru leikirnir þó nokkuð jafnir og því má frekar gera því skóna að það styttist í fyrsta sigurleik liðsins í keppninni en ekki. Seinni leikur þessa annars glugga keppninnar er svo líka heimaleikur gegn Rúmeníu í Ólafssal komandi sunnudag kl. 17:00.
Frítt verður á leik kvöldsins í Ólafssal í boði VÍS á meðan húsrúm leyfir, en einnig verður leikurinn í beinni útsendingu frá kl. 19:20 á RÚV 2. Þá skal tekið fram að húsið opnar kl. 18:15 og verða bæði hamborgarar og pítsur til sölu.
Hérna er 15 leikmanna hópur Íslands fyrir leikina
Karfan kom við á æfingu hjá liðinu á dögunum og ræddi við þjálfarann Benedikt Guðmundsson, og leikmennina Kolbrúnu Maríu Ármannsdóttur, Agnesi Jónudóttur og Danielle Rodriguez, en viðtöl við þau eru aðgengileg hér fyrir neðan.