spot_img

Frá fram að jólum

Leikmaður íslenska landsliðsins og Vals í Bónus deild kvenna Ásta Júlía Grímsdóttir verður frá æfingum og keppni vegna meiðsla næstu átta vikur. Staðfesti Ásta þetta í samtali við Körfuna.

Samkvæmt Ástu Júlíu er hún meidd á liðþófa. Hvorki getur hún tekið þátt með íslenska landsliðinu í vikunni og þá verður hún einnig frá fram að jólum með liði sínu í Bónus deildinni vegna þessa.

Ásta Júlía hefur farið vel af stað með Val á tímabilinu í Bónus deildinni. Skilað 10 stigum og 9 fráköstum að meðaltali í leik í fyrstu fimm umferðunum.

Fréttir
- Auglýsing -