spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaLutu í lægra haldi gegn House of Talents Spurs Kortrijk

Lutu í lægra haldi gegn House of Talents Spurs Kortrijk

Styrmir Snær Þrastarson og félagar í Union Mons máttu þola tap gegn House of Talents Spurs Kortrijk í BNXT deildinni í Hollandi/Belgíu, 82-91.

Á 35 mínútum spiluðum í leiknum var Styrmir Snær með 11 stig, 6 fráköst, 2 stoðsendingar, stolinn bolta og varið skot.

Eftir leikinn er Mons í 9. sæti deildarinnar með fimm sigra og fjögur töp það sem af er deildarkeppni.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -