Martin Hermannsson og Alba Berlin máttu þola tap í EuroLeague í kvöld gegn Anadolu Efes frá Tyrklandi, 70-86.
Martin lék um 25 mínútur í leiknum og skilaði 24 stigum, frákasti og 2 stoðsendingum, en hann var framlagshæstur í liði Alba Berlin í leiknum.
Eftir leikinn er Alba Berlin í 18. sæti deildarinnar með einn sigur og sex töp eftir fyrstu sjö umferðirnar.