Íslenska kvennalandsliðið mun nú í nóvember leika tvo heimaleiki gegn Slóvakíu og Rúmeníu. Báðir munu leikirnir fara fram í Ólafssal í Hafnarfirði, en þeir eru hluti af undankeppni EuroBasket 2025. Síðustu tveir leikir undankeppninnar munu fara fram í febrúar.
Nóvemberleikirnir:
Ísland-Slóvakía 7. Nóvember kl 19:30
Ísland-Rúmenía 10. Nóvember kl 17:00
Landsliðsþjálfarar Íslands kynntu rétt í þessu 15 leikmanna hóp liðsins fyrir leikina tvo, en í honum eru þrír nýliðar, Anna Lára Vignisdóttir, Danielle Rodriguez og Kolbrún María Ármannsdóttir. Leikjahæst í hópi liðsins er Þóra Kristín Jónsdóttir með 33 leiki, en henni næstar eru Thelma Dís Ágústsdóttir og Dagbjört Dögg Karlsdóttir með 20 leiki hvor.
15 leikmanna hópur Íslands:
Agnes María Svansdóttir – Keflavík 2 leikir
Anna Ingunn Svansdóttir – Keflavík 10 leikir
Anna Lára Vignisdóttir – Keflavík nýliði
Ásta Júlía Grímsdóttir – Valur 14 leikir
Dagbjört Dögg Karlsdóttir – Valur 20 leikir
Danielle Rodriquez – Fribourg nýliði
Diljá Ögn Lárusdóttir – Stjarnan 6 leikir
Eva Margrét Kristjánsdóttir – Haukar 6 leikir
Eva Wium Elíasdóttir – Þór Akureyri 2 leikir
Isabella Ósk Sigurðardóttr – Grindavík 14 leikir
Kolbrún María Ármannsdóttir – Stjarnan nýliði
Sara Líf Boama – Valur 3 leikir
Thelma Dís Ágústsdóttir – Keflavík 20 leikir
Þóra Kristín Jónsdóttir – Haukar 33 leikir
Tinna Guðrún Alexandersdóttir – Haukar 6 leiki
Þjálfari: Benedikt Rúnar Guðmundsson
Aðstoðaþjálfarar: Halldór Karl Þórsson & Ólafur Jónas Sigurðsson