Martin Hermannsson og Alba Berlin báru sigurorð af Braunschweig í þýsku úrvalsdeildinni, 65-61.
Á tæpum 23 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 7 stigum, 5 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.
Eftir fremur erfiða byrjun á deildarkeppninni í Þýskalandi er Alba Berlin að ná vopnum sínum á nýjan leik, en eftir leik dagsins eru þeir í 14. sætinu með tvo sigra og þrjú töp eftir fyrstu fimm umferðirnar.