spot_img

Lykill: Khalil Shabazz

Lykilleikmaður fjórðu umferðar Bónus deildar karla var leikmaður Njarðvíkur Khalil Shabaz.

Í nokkuð öruggum sigur Njarðvíkur gegn Hetti á Egilsstöðum var Khalil gjörsamlega frábær. Á tæpum 35 mínútum spiluðum skilaði hann 34 stigum, 6 fráköstum, 3 stoðsendingum og 8 stolnum boltum. Þá var skilvirkni hans í leiknum til fyrirmyndar, með 50% skotnýtingu fyrir utan þriggja stiga línuna, fimm fiskaðar villur og 38 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Bónus deild karla

  1. umferð – Linards Jaunzems / KR
  2. umferð – Shaquille Rombley / Stjarnan
  3. umferð – Taiwo Badmus / Valur
  4. umferð – Khalil Shabazz / Njarðvík
Fréttir
- Auglýsing -