spot_img
HomeAðsentKörfuboltabúðir Adama Darboe og Ármanns í vetrarfríinu

Körfuboltabúðir Adama Darboe og Ármanns í vetrarfríinu

Körfunknattleiksdeild Ármanns ásamt leikstjórnandanum danska Adama Darboe standa fyrir körfuboltabúðum í vetrarfríi grunnskóla Reykjavíkurborgar sem fer fram næstu helgi.

Búðirnar fara fram í Laugardalshöllinni dagana 24.-25. og 28. október. Hópnum er skipt upp í tvo aldurshópa:

Yngri hópurinn 6-11 ára fer fram frá 9:00-12:00 og er verðið 12.000 kr. Eldri hópurinn er frá 13:00-17:00 og er innifalinn hádegismatur hjá þeim hopi, verðið er 20.000 kr.

Lögð verður áhersla á styrktaræfingar auk einstaklingsmiðaðra æfinga frá þjálfurum. Auk Adama Darboe verður styrktarþjálfari búðanna Gunnar Ingi Harðarson. En eldri hópurinn getur keypt einstaklingsmiðað lyftingarprógramm frá Gunnari á 8000 kr út tímabilið.

Þetta er tækifæri sem engin körfuknattleiksiðkandi ætti að láta framhjá sér fara. Skráning er hafin í Sportabler eða hér.

Fréttir
- Auglýsing -