spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaLutu í lægra haldi gegn Spirou

Lutu í lægra haldi gegn Spirou

Styrmir Snær Þrastarson og Union Mons máttu þola tap gegn Spirou í BNXT deildinni í Hollandi/Belgíu, 60-50.

Á 38 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Styrmir þremur stigum, átta fráköstum og fjórum stolnum boltum, en hann var frákastahæstur í liði Mons í leiknum.

Eftir leikinn er Mons í 8. sæti deildarinnar með þrjá sigra og þrjú töp það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -