spot_img

Frá í lengri tíma

Leikmaður Hauka Lovísa Björt Henningsdóttir verður frá í lengri tíma eftir að hafa meiðst á hnéi í síðasta leik liðsins í Bónus deild kvenna.

Lovísa þurfti að yfirgefa völlinn í sigri liðsins gegn Stjörnunni og eftir að hafa farið í rannsóknir í vikunni er ljóst að um krossbandsslit er að ræða og verður hún því frá í lengri tíma. Lovísa vildi koma eftirfarandi á framfæri í fréttatilkynningu: ”Ég mun takast á við þetta verkefni og koma sterkari tilbaka en mun að sjálfsögðu halda áfram að vera hluti af liðinu í Haukum og styðja það og styrkja í komandi baráttu um titla í vetur”.

Fréttir
- Auglýsing -