spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaMartin frábær í fyrsta sigri vetrarins í EuroLeague

Martin frábær í fyrsta sigri vetrarins í EuroLeague

Martin Hermannsson og Alba Berlin náðu í fyrsta sigur vetrarins í EuroLeague er liðið lagði ASVEL Villeurbanne frá Frakklandi, 84-79.

Martin lék tæpar 26 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 21 stigi, 2 fráköstum og 2 stoðsendingum, en hann var bæði stiga og framlagshæstur í liði Alba Berlin í leiknum.

Með sigrinum spyrnti Alba Berlin sér af botni deildarinnar, en þeir eru nú í 16. sætinu með einn sigur og tvö töp það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -