Jón Axel Guðmundsson og Burgos eru enn taplausir í spænsku Primera deildinni eftir sigur gegn Palencia í þriðju umferð deildarinnar, 88-77.
Jón Axel lék tæpar 17 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 21 stigi, frákasti og 2 stoðsendingum, en hann var bæði stiga og framlagshæstur í liði Burgos í leiknum.
Burgos er þó ekki eina liðið sem unnið hefur fyrstu þrjá leikina, en þeir deilda efsta sæti deildarinnar með Real Betis og Oursense.