spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaStigahæstur gegn stórveldinu

Stigahæstur gegn stórveldinu

Martin Hermannsson og Alba Berlin máttu þola tap gegn stórliði Barcelona í Euroleague í kvöld, 88-73.

Á rúmum 27 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 13 stigum, 2 fráköstum og 5 stoðsendingum, en hann var stigahæstur í liði Alba Berlin í leiknum.

Aðeins tvær umferðir eru búnar af deildarkeppni Euroleague, en Alba Berlin hefur tapað leikjum sínum í þeim báðum. Næst mæta þeir ASVEL frá Frakklandi í keppninni þann 15. október.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -