spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaSemja við einn efnilegasta leikmann landsins

Semja við einn efnilegasta leikmann landsins

Njarðvík hefur samið við Bo Guttormsdóttur-Frost fyrir komandi átök í Bónus deild kvenna.

Bo hefur spilað allan sinn yngriflokka feril með Stjörnunni og iðulega verið viðriðin yngri landsliðin en nú síðast á mála hjá liði Valencia á Spáni. Bo er aðeins 16 ára gömul og hluti af sterkum 2008 árgangi “Bo er ungur og spennandi leikmaður sem kemur til með að styrkja sterkan hóp enn frekar í baráttunni. Hún bæti auðvitað upp á sentimetrana hjá okkur þar sem að hún er er hávaxinn leikmaður og einnig fjölhæf á boltann.” sagði Einar Árni Jóhannsson þjálfari kvennaliðsins við tækifæri.

“Ég tel þetta vera rétt skref fyrir minn feril akkúrat núna. Liðið er sterkt, aðstaðan stórglæsileg og ég hef trú á að Njarðvík geti barist um titla í vetur. Ég legg mig 120% í þau verkefni sem ég fæ í hendurnar og vonandi hjálpa liðinu að ná eins hátt og hægt er.” sagði Bo í fréttatilkynningu.

Fréttir
- Auglýsing -