Jón Axel Guðmundsson og San Pablo Burgos lögðu Fuenlabrada í Primera deildinni á Spáni, 70-79.
Á rúmum 25 mínútum spiluðum skilaði Jón Axel 17 stigum, 2 fráköstum og 2 stoðsendingum.
Leikurinn var sá annar sem Burgos leika í deildinni þetta tímabilið og hafa þeir, líkt og Palencia, Oursense og Real Betis unnið báða leiki sína.