Keflavík hefur samið við Katrina Trankale fyrir yfirstandandi tímabil í Bónus deild kvenna. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.
Katrina er 22 ára, 176 cm bakvörður frá Lettlandi sem síðast lék fyrir Barsy Atyrau í Kasakstan. Þá var hún einnig á sínum tíma hluti af yngri landsliðum lettlands, nú síðast undir 20 ára liði þeirra árið 2022.
Íslands, bikar- og deildarmeistarar Keflavíkur hafa farið afar illa af stað á leiktíðinni, þar sem um síðustu helgi tapaði liðið leik meisturum meistara gegn Þór Akureyri og svo töpuðu þær aftur í fyrstu umferð Bónus deildarinnar í vikunni gegn Stjörnunni.