Haukar tóku á móti nýliðum Hamars/Þórs í fyrstu umferð Bónus deildar kvenna í kvöld. Lið á vegum Þórs spilaði þar sinn fyrsta leik í efstu deild kvenna, en lið Hamars hafa áður spilað í deild þeirra bestu.
Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik, en heimakonur leiddu með einu stigi í hálfleik, 48-47. Í seinni hálfleik reyndust Hafnfirðingar svo sterkari, og fóru að lokum með níu stiga sigur, 93-84.
Lore Devos átti stórleik í liði Hauka, en hún skoraði 41 stig og tók 10 fráköst. Hjá Hamri/Þór skoraði Abby Beeman 25 stig og gaf 12 stoðsendingar.