Spá formanna, þjálfara, fyrirliða liða og fjölmiðla fyrir Bónus deild karla var birt í dag, en deildin rúllar af stað í næstu viku. Þar er Val spáð efsta sætinu af fulltrúm félaga á meðan að Keflavík eru efstir í spá fjölmiðla. Báðar spár eru sammála um að ÍR falli, en hjá fjölmiðlum er það Höttur sem fylgir þeim niður á meðan að hjá fulltrúum félaga eru það Haukar sem fara niður með þeim.
Hér má sjá spá fyrir tímabilið
Karfan spjallaði við aðstoðarþjálfara Vals Jamil Abiad um komandi tímabil, hvernig hópurinn sé að koma saman og hvernig hann sjái deildina fyrir sér í vetur.