spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaÁsmundur Múli tryggði KFG sigur í Borgarnesi

Ásmundur Múli tryggði KFG sigur í Borgarnesi

KFG lagði Skallagrím með minnsta mun mögulegum í æfingaleik í Borgarnesi í kvöld, 83-84, en bæði lið undirbúa sig þessa dagana fyrir upphaf deildarkeppni fyrstu deildar karla sem rúllar af stað í næstu viku.

Líkt og tölurnar gefa til kynna var leikurinn afar spennandi á lokametrunum, en það var Ásmundur Múli Ármannsson sem setti sigurkörfuna fyrir KFG með fallegu flotskoti þegar rétt tæpar tvær sekúndur voru eftir. Skallagrímur náði nokkuð góðri atlögu að körfunni á þessum síðustu sekúndum, en ekki vildi boltinn niður og KFG því með eins stigs sigur.

Stigahæstur heimamanna í leiknum var Jure Boban með 16 stig. Honum næstir voru Eiríkur Frímann Jónsson og Antanas Tamulis með 15 stig hvor.

Fyrir KFG var Kristján Fannar Ingólfsson stigahæstur með 17 stig og Ásmundur Múli Ármannsson bætti við 15 stigum.

Tölfræði leiks

Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -