spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaMun ekki leika með Haukum

Mun ekki leika með Haukum

Haukar hafa samkvæmt heimildum Körfunnar sagt upp samningi sínum við hinn litháíska Arvydas Gydra. Arvydas kom til liðsins nú fyrir komandi tímabil frá Flyers Wels í Austurríki og hefur síðustu vikur æft og leikið með liðinu í undirbúningi þeirra fyrir Bónus deildina. Arvydas mun því ekki leika með liðinu í vetur eins og ráð var gert fyrir, en ekki fylgir heimildum hvort eða hvern Hafnarfjarðarliðið muni fá í stað hans.

Fréttir
- Auglýsing -