Stjarnan hefur samið við Viktor Lúðvíksson um að leika með liðinu á komandi tímabili í Bónus deild karla.
Viktor er að upplagi úr Stjörnunni og er einn af efnilegri leikmönnum Íslands. Á síðustu árum hefur hann leikið lykilhlutverk í yngri landsliðum, nú síðast með undir 18 ára liði drengja á Norðulanda- og Evrópumótum í sumar, en hann kemur aftur til Stjörnunnar frá Munster í Þýskalandi.