spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaUngir og efnilegir leikmenn styrkja og styðja við Aftureldingu

Ungir og efnilegir leikmenn styrkja og styðja við Aftureldingu

Lið Aftureldingar er stöðugt að taka á sig mynd og hefur styrkt sig fyrir keppni í 2.deildinni í ár. Æfingar hafa samkvæmt fréttatilkynningu gengið mjög vel undanfarið undir handleiðslu Sævaldar Bjarnasonar. Ungir og efnilegir leikmenn úr öðrum liðum ætla að taka þátt í þessu verkefni með félaginu í vetur. Þeir leikmenn sem ákveðið hafa að taka slaginn með Aftureldingu eru:

  • Alexander Jón Finnsson, fæddur 2004, Borgnesingur í húð og hár kemur til Aftureldingar frá Skallagrími.
  • Elvar Máni Símonarson, fæddur 2005 , Fjölnismaður sem kemur úr Grafarvoginum.
  • Eysteinn Freyr Júlíusson verður aldursforsetinn í hópnum, fæddur 1989, uppalinn Fjölnismaður
  • Kjartan Karl Gunnarsson, fæddur 2005, Fjölnismaður sem kemur til Aftureldingar á venslasamning frá Fjölni.
  • Kristófer Elí Harðarson, fæddur 2006, uppalinn ÍR-ingur og kemur í Mosfellsbæinn úr Breiðholtinu.
  • Óskar Víkingur Davíðsson, fæddur 2005, Breiðhyltingur með sterkar rætur úr Skagafirðinum en hann kemur til Aftureldingar frá ÍR.

Auk þessara leikmanna hefur Arnar Jónsson tekið að sér að vera formaður meistaraflokksráðs deildarinnar.  Arnar er búsettur í Mosfellsbæ og er fæddur 1989, uppalinn Fjölnismaður og sá eini í hópnum sem lék með Aftureldingu síðast þegar þeir voru í 2. deild karla. 

Mynd 1: Nýir leikmenn, frá vinstri: Kristófer Elí, Alexander Jón, Elvar Máni, Óskar Víkingur og Eysteinn Freyr.
Mynd 2: Kjartan Karl
Mynd 3: Liðsmynd

Fréttir
- Auglýsing -