spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaEinstaklingsþjálfari til Stjörnunnar

Einstaklingsþjálfari til Stjörnunnar

Stjarnan hefur samið við Ilijan Omercen sem einstaklingsþjálfara fyrir komandi leiktíð.

Ilijan mun vera einstaklingsþjálfari deildarinnar þar sem hann mun bæði vinna með leikmönnum yngri flokka sem og meistaraflokksleikmönnum. Ilija er frá Króatíu og var meðal annars aðalþjálfari hjá u16 landsliði Króatíu í sumar. Hann þjálfaði einnig í unglinga akademíu Split í Króatíu í mörg ár. Sl. tvö ár vann hann með Baldri Ragnarssyni í Ulm í Þýskalandi við góðan orðstýr.

Fréttir
- Auglýsing -