spot_img
HomeNeðri deildir2. deild karlaMeistaraflokkur Aftureldingar tekur á sig mynd - Mosfellingar heim í heiðardalinn

Meistaraflokkur Aftureldingar tekur á sig mynd – Mosfellingar heim í heiðardalinn

Körfuboltasamfélagið í Mosfellsbæ er ört vaxandi og á sunnudag hefur meistaraflokkur Aftureldingar í körfubolta vegferð sína í 2. deild Íslandsmótsins þegar sá flokkur er endurvakinn hjá félaginu. Fyrsti leikur er gegn Uppsveitum í N1 höllinni að Varmá kl. 14.00 komandi sunnudag 22. september. 

Nokkur ár eru síðan Afturelding tefldi fram meistaraflokki og spennandi verður að sjá hvernig þeim tekst að fóta sig í deildinni í ár. Ákvörðun um að fara í þessa vegferð má samkvæmt fréttatilkynningu félagsins fyrst og fremst rekja til þess að yngri flokka starfinu hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum og gríðarleg aukning hefur verið í flestum yngri flokkum. Samkvæmt félaginu er það staðföst trú stjórnar og þjálfara deildarinnar að með góðu og heilbrigðu yngri flokka starfi og metnaarfullu afreksstarfi sé hægt að bjóða upp á flott verkefni í heimabyggð í meistaraflokki.

Afturelding kynnir hóp sinn fyrir komandi tímabil þar sem 8 uppaldir Mosfellingar munu taka slaginn með þeim. Nokkrir þeirra að koma til baka frá öðrum félögum á meðan aðrir eru að taka upp þráðinn aftur eftir hlé frá yngri flokkum og enn aðrir taka slaginn með okkur í fyrsta skipti.   Þessir leikmenn eru (upptalning frá vinstri á mynd) :

Bergsveinn Kári Jóhannesson f.2006  kemur heim frá ÍR

Anton Örn Bjarnason f.2005 , Mosfellingur

Eiríkur Karlsson f.2006 , kemur heim frá ÍR

Magnús Gunnar Gíslason f.2003, Mosfellingur

Magni Fannar Jónsson, f.2006 , kemur heim frá Fjölni

Markús Ingvarsson, f.2005 Mosfellingur,

Bragi Snær Hauksson, f. 2007 kemur heim frá Fjölni

Hlynur Logi Ingólfsson f.1999, kemur heim frá Fjölni (vantar á myndina)

Fréttir
- Auglýsing -