Höttur hefur samið við leikmennina Sigmar Hákonarson og Andra Hrannar Magnússon og þjálfarann Viðar Örn Hafsteinsson fyrir komandi tímabil í Bónus deild karla.
Báðir voru Sigmar og Andri Hrannar leikmenn liðsins, en Sigmar hefur leikið fyrir Hött síðustu 15 tímabil, en Andri Hrannar er að koma aftur inn í hópinn eftir að hafa verið í Danmörku á síðasta tímabili í skóla.