spot_img
HomeFréttirLutu í lægra haldi gegn Portúgal

Lutu í lægra haldi gegn Portúgal

Undir 16 ára drengjalið Íslands laut í lægra haldi gegn Portúgal á Evrópumótinu í Makedóníu í kvöld, 80-65. Leikurinn var sá fyrsti sem liðið lék í umspili um sæti 9 til 16 á mótinu, en næst munu þeir leika um 13 til 16 sætið gegn Danmörku kl. 14:00 á morgun föstudag.

Atkvæðamestur í liði Íslands í kvöld var Róbert Óskarsson með 19 stig, 7 fráköst og 4 stolna bolta. Honum næstur var Jakob Leifsson með 12 stig, 9 fráköst og 3 stoðsendingar.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -