spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaValdís Una og Anna Katrín skrifa undir

Valdís Una og Anna Katrín skrifa undir

Selfoss hefur samið við þær Önnu Katrínu Víðisdóttur og Valdísi Unu Guðmannsdóttur fyrir komandi tímabil í fyrstu deild kvenna.

Valdís Una er 19 ára bakvörður sem að upplagi er úr Hrunamönnum, en hefur leikið með Hamar/Þór síðustu ár. Samhliða því hefur hún verið þjálfari hjá Selfoss. Anna Katrín er 18 ára bakvörður sem einnig er að upplagi úr Hrunamönnum, en hefur leikið fyrir Hamar/Þór á síðustu árum. Báðar hafa þær verið viðloðandi yngri landslið Íslands á síðustu árum.

Fréttir
- Auglýsing -