spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaTekur slaginn á Meistaravöllum

Tekur slaginn á Meistaravöllum

KR hefur á nýjan leik samið við Nimrod Hilliard um að leika með þeim út næsta tímabil í Bónusdeild karla.

Nimrod er bandarískur bakvörður sem upphaflega kom til liðsins um mitt síðasta tímabil. Var hann hluti af liðinu sem vann sig beint aftur upp í Bónusdeildina með því að sigra þá fyrstu, en ásamt því að skila 23 stigum og 7 stoðsendingum að meðaltali í leik tapaði hann ekki einum deildarleik í KR treyjunni. Áður en Nim gekk til liðs við KR þá hafði hann spilað m.a. í Þýskalandi, Ungverjalandi, Kýpur, Danmörku og Svíþjóð. Nim meiddist illa tímabilið 2022-2023 og var því að stíga upp úr erfiðum meiðslum þegar hann gekk til liðs við KR um síðustu áramót.

Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari meistaraflokks karla “Ég er gríðarlega ánægður að Nim komi aftur í KR og sýnir það hversu vel honum leið hjá okkur. Nim var frábær fyrir okkur í fyrra og var hann þá að koma til baka eftir erfið meiðsli. Ferill hans sýnir að hann hefur spilað vel á góðu leveli í Evrópu og trúi ég að hann komist aftur á þann stað.”

Fréttir
- Auglýsing -