Tómas Þórður Hilmarson, Hjálmar Stefánsson og Aquimisa Carbajosa máttu þola tap í kvöld fyrir Enerdrink Udea Algeciras Dam í Leb Plata deildinni á Spáni, 75-45. Carbajosa með sex sigra og sjö töp það sem af er tímabili í 8. sæti austurhluta deildarinnar.
Á rúmum 22 mínútum spiluðum í kvöld skilaði Hjálmar 6 stigum, 2 fráköstum, stoðsendingu og stolnum bolta. Tómas Þórður lék rúmar 25 mínútur og var með 3 stig og 3 fráköst.