Undir 20 ára karlalið Íslands mun kl. 13:30 leika lokaleik sinn á Evrópumótinu í Gdynia í Póllandi. Leikurinn er upp á 13. sæti mótsins gegn Tyrklandi, en sæti 14, 15 og 16 falla öll í B deildina og því mikilvægt fyrir Ísland að sigra í dag. Leikurinn verður í beinu vefstreymi hér fyrir neðan.