Undir 20 ára karlalið Íslands mætir Serbíu kl. 13:30 í dag í fyrsta leik umspils um sæti 9 til 16 á Evrópumótinu í Gdynia í Póllandi. Bæði lið lutu í lægra haldi í 16 liða úrslitum í gær, þar sem Ísland tapaði með minnsta mun mögulegum gegn Belgíu, en Serbía fimm stigum gegn Tékklandi.
Leikur dagsins verður í beinu vefstreymi hér fyrir neðan kl. 13:30.