spot_img
HomeFréttirÍsland mætir Litháen í fyrsta leik Evrópumótsins í beinni útsendingu hér ...

Ísland mætir Litháen í fyrsta leik Evrópumótsins í beinni útsendingu hér kl. 13:30

Undir 20 ára lið karla hefur leik í dag á Evrópumótinu í Gdynia í Póllandi. Fyrsti leikur liðsins er gegn sterku liði Litháen kl. 13:30, en ásamt þeim er Ísland í riðli með Svartfjallalandi og Slóveníu. Líkt og með aðra leiki sem Ísland leikur í á Evrópumótum verður lifandi tölfræði og opið beint streymi frá öllum leikjum sem hægt er að finna á heimasíðu mótsins hér. Myndir og fréttir frá liðinu munu einnig koma á samfélagsmiðla KKÍ á meðan mótinu stendur.

Hér má sjá hverjir eru í liði Íslands

Fréttir
- Auglýsing -