Undir 20 ára lið kvenna mun mæta Írlandi kl. 12:30 í dag fimmtudag 11. júlí í öðrum leik 8 liða úrslita Evrópumótsins í Búlgaríu.
Í fyrri riðlakeppni mótsins vann liðið tvo leiki og tapaði einum og náði að tryggja sig áfram í 8 liða úrslitin með glæsilegum sigri gegn heimakonum í Búlgaríu síðasta mánudag. Fyrri leik 8 liða úrslita tapaði liðið gegn Tékklandi í gær, 67-61. Myndir og fréttir frá liðinu munu einnig koma á samfélagsmiðla KKÍ á meðan mótinu stendur.