spot_img
HomeFréttirHulda María valin í úrvalslið Norðurlandamótsins í Kisakallio

Hulda María valin í úrvalslið Norðurlandamótsins í Kisakallio

Undir 16 ára stúlknalið Íslands lauk leik í gær á Norðurlandamótinu í Kisakallio. Liðið hafnaði í 4. sæti mótsins.

Íslenska liðið hafði þó á að skipa einum besta leikmanns mótsins í Huldu Maríu Agnarsdóttur, sem var að loknum síðasta leik valin í fimm leikmanna úrvalslið mótsins. Hulda var gjörsamlega frábær fyrir Ísland á mótinu, hún leiddi alla leikmenn mótsins í stigaskorun og var að meðaltali með 18 stig í leik

Hérna eru fréttir af mótinu

Fréttir
- Auglýsing -