spot_img
HomeFréttirSjáðu Kristófer Breka setja leikmann Finnlands á skauta

Sjáðu Kristófer Breka setja leikmann Finnlands á skauta

Undir 18 ára drengjalið Íslands mátti þola tap í gær gegn sterku liði Finnlands eftir spennandi leik á Norðurlandamótinu í Södertalje. Bæði lið luku leik í dag, Finnland varð Norðurlandameistari á meðan að íslenska liðið komst ekki á verðlaunapall.

Hérna eru fréttir af mótinu

Finnska liðið má hafa tekið sigurinn gegn íslenska liðinu í gær og að lokum titilinn eftirsótta, en bestu tilþrif leiksins átti leikmaður Íslands Kristófer Breki Björgvinsson. Í byrjun annars leikhluta fær hann boltann, hristir finnskan varnarmann sinn af sér með tilþrifum og leggur boltann svo ofaní körfuna svo allir viðstaddir leikinn tóku andköf. Hreyfinguna má sjá hér fyrir neðan á Instagram aðgangi Friimixtape.

Fréttir
- Auglýsing -