Dagana 25., 26., og 27. júlí nk. verður Jamil Abiad ásamt meistaraflokki kvenna með körfuboltabúðir í N1 höllinni fyrir krakka og ungmenni á aldrinum 9-18 ára.
Verð 10.000 kr fyrir alla 3 dagana.
Lögð verður áhersla á dripl, skot, hvernig skal bregðast við mismunandi aðstæðum í leik og fleira.
Tímasetningar eru eftirfarandi:
25. júlí kl. 11:00-14:00 – Allir
26. júlí kl. 11:00-14:00 – Allir
27. júlí kl. 13:30-16:30 – Allir
Tekið er fram að iðkendur allra félaga eru velkomnir á námskeiðið.
Frekari upplýsingar veitir Margrét Ósk Einarsdóttir, aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna: [email protected].