Njarðvík lagði Keflavík í kvöld í 11. umferð Subway deildar karla, 114-103. Eftir leikinn er Keflavík í 2. sæti deildarinnar með 16 stig á meðan að Njarðvík er í 4. sætinu með 14 stig.
Karfan spjallaði við Elías Bjarka Pálsson leikmann Njarðvíkur eftir leik í Ljónagryfjunni. Elías Bjarki átti frábæra innkomu af bekknum fyrir Njarðvík í kvöld, skilaði 13 stigum og 2 fráköstum á rúmum 15 mínútum spiluðum.