spot_img

Semur til tveggja ára

Sara Rún Hinriksdóttir hefur framlengt samningi sínum við meistara Keflavíkur til næstu tveggja ára. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum rétt í þessu. Sara Rún kom aftur heim til Keflavíkur á síðasta tímabili og var lykilleikmaður í liði þeirra sem vann deild, bikar og Íslandsmeistaratitil.

Friðrik Ingi, nýráðinn þjálfari var virkilega ánægður að fá að njóta krafta Thelmu, Emelíu og Söru áfram og telur hann það algert lykilatriði að halda stelpum sem hafa alist upp í þessum klúbb. “Enginn vafi er á getu þeirra og við erum með lið sem getur farið langt.”

Þá sagði Sara Rún “Það var gott að koma aftur í Keflavíkina á síðasta tímabili og ekki verra að næla í alla 3 titlana. Nú hefst vinnan í að halda þeim í bikarskápnum hér í Blue Höllinni. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum í að það verði að veruleika.”

Fréttir
- Auglýsing -