Sara Rún Hinriksdóttir og Faenza lögðu lið Le Mura Lucca í kvöld í ítölsku úrvalsdeildinni, 72-66.
Faenza er eftir leikinn í 10. sæti deildarinnar með fjóra sigra og níu töp það sem af er tímabili.
Á rúmum 29 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sara Rún 13 stigum, 4 fráköstum og 4 stoðsendingum.
Næsti leikur Faenza er þann 30. desember gegn Venezia.