spot_img

Úr Grindavík í Val

Valur hefur samið við bakvörðinn Alexöndru Evu Sverrisdóttur til næstu tveggja tímabila í Subway deild kvenna.

Alexandra er að upplagi úr Njarðvík, en kemur til liðsins frá Grindavík. Ásamt þeim hefur hún einnig spilað fyrir KR og Stjörnuna í meistaraflokki.

Jamil nýráðinn þjálfari liðsins “Ég er hrifinn af orkunni sem hún kemur með varnarlega og það hjálpar í hröðu uppspili sem er sú tegund af körfubolta sem ég við spila. Hún passar síðan vel við okkar hugmyndafræði og gildi en það er auðvitað það mikilvægasta.”

Alexandra “Ég er virkilega spennt fyrir komandi tímabili með Val. Hlakka til að kynnast liðsfélögum og þjálfurum fyrir komandi átök í Subway deildinni.”

Fréttir
- Auglýsing -