spot_img

Tekur við Tindastóli

Benedikt Guðmundsson verður næsti þjálfari Tindastóls samkvæmt heimildum vefmiðilsins mbl.is.

Benedikt var síðustu tímabil þjálfari Njarðvíkur í Subway deildinni ásamt því að hafa verið landsliðsþjálfari kvenna. Þá hefur hann áður stýrt karla og kvennaliði KR, Grinda­vík, Þór á Ak­ur­eyri og Þór frá Þor­kák­s­höfn.

Benedikt gerði vel með Njarðvík á nýafstöðnu tímabili. Liðið fór alla leið í oddaleik undanúrslita gegn verðandi Íslandsmeisturum Vals og var hann fyrr í dag valinn þjálfari ársins á árlegu lokahófi KKÍ.

Fréttir
- Auglýsing -