Pavel Ermolinski mun ekki halda áfram sem þjálfari Tindastóls. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.
Pavel tók við sem þjálfari Tindastóls í janúar á síðasta ári og leiddi liðið til síns fyrsta Íslandsmeistaratitils tímabilið 2022-23. Hann hóf svo yfirstandandi tímabil, en þurfti frá að hverfa vegna veikinda um miðjan mars síðastliðinn.
Tilkynningu félagsins er hægt að lesa hér fyrir neðan, en í henni segir að þjálfari og félag hafi komist að samkomulagi um starfslok.
Pavel kveður
Merkilegur atburður hefur nú átt sér stað. Í eitt af fáum skiptum í íþróttasögunni hafa þjálfari og félag sammælst í einlægni um starfslok. Ég og fjölskylda mín erum mjög þakklát fyrir tíma okkar í Skagafirði og höfum eignast vini fyrir lífstíð.
,,Að hafa fengið að fagna titli með samfélaginu hér var einstök stund á mínum ferli og sá einlægi stuðningur sem ég fann frá fyrsta degi var ekki eingöngu bundinn við körfuboltavöllinn. Ég hef líka notið hans utan vallar og það hefur verið mér ómetanlegt. Hér standa allir saman gegnum sigra og töp. Ég hlakka til að fá loksins að koma í Síkið sem venjulegur áhorfandi og njóta mín með ykkur.“
Pavel Ermolinski
Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls þakkar Pavel fyrir samstarfið og óskar honum og fjölskyldu velfarnaðar í framtíðinni.
Áfram Tindastóll!