Stjarnan varð á dögunum Íslandsmeistari í 10. flokki stúlkna eftir sigur gegn KR í úrslitaeinvígi. Stjarnan vann einvígið 2-0, en þær unnu fyrsta leikinn á Meistaravöllum áður en þær tryggðu sér titilinn með sigri heima í Umhyggjuhöllinni í hörkuleik, 65-59. Þjálfari liðsins er Viktor Alexandersson.
Bo Guttormsdóttir Frost var valin verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hún skilaði að meðaltali 25 stigum, 13 fráköstum og 3 stoðsendingum.
Mynd / KKÍ