Fyrr í mánuðinum varð Grindavík meistari 2. deildar 12. flokks kvenna eftir sigur gegn Þór Akureyri í úrslitaleik á Meistaravöllum. Leikurinn var lengst af jafn og Grindavík tryggði sér sigurinn með körfu 17 sekúndum fyrir leikslok.
Elín Bjarnadóttir var valin maður leiksins, en hún skilaði 23 stigum, 8 fráköstum, 4 stoðsendingum og 6 stolnum boltum.
Mynd / KKÍ