spot_img
HomeFréttirVestur um haf fyrir næsta tímabil

Vestur um haf fyrir næsta tímabil

Bakvörður Breiðabliks Sölvi Ólason mun halda vestur um haf fyrir komandi tímabil og ganga til liðs við Portland Community College fyrir komandi tímabil. Staðfestir Soccer and education USA þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.

Sölvi er fæddur árið 2004 og er að upplagi úr Breiðablik, en hann lék fyrst með meistaraflokki þeirra tímabilið 2019-20. Þá hefur Sölvi einnig verið hluti af yngri landsliðum Íslands, nú síðast með undir 20 ára liðinu síðasta sumar.

Skólinn sem Sölvi fer í er staddur í Portland borg Oregon ríkis Bandaríkjanna, en liðið leikur í Northwest Athletic deild háskólaboltans, eða NWAC.

Fréttir
- Auglýsing -