spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaFrá Akureyri í Hafnarfjörð

Frá Akureyri í Hafnarfjörð

Leikmaður Þórs Akureyri á yfirstandandi tímabili Lore Devos mun leika fyrir Hauka í Subway deild kvenna á næstu leiktíð. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.

Lore átti afar gott tímabil með Þór Akureyri sem fór í úrslit bikarkeppninnar og í 8 liða úrslit úrslitakeppninnar, en hún skilaði 21 stigi, 9 fráköstum og 4 stoðsendingum að meðaltali í leik.

Lore er 25 ára framherji frá Kortrijk í Belgíu. Hún útskrifaðist frá Colorado State árið 2021 þar sem hún skilaði 13 stigum og 7 fráköstum á sínu síðasta tímabili með skólanum. Þá hefur hún spilað með Elfic Fribourg Basket í Sviss og svo Castors Braine í Belgíu eftir veru sína í Colorado. Um þessar stundir spilar Lore með Launceston Tornadoes í Ástralíu og kemur þaðan til Hauka.

Fréttir
- Auglýsing -