Valur hafði betur gegn Njarðvík í oddaleik undanúrslita Subway deildar karla í kvöld, 85-82. Valur fer því í úrslitin þriðja árið í röð, en þar munu þeir mæta Grindavík.
Karfan ræddi við Kára Jónsson leikmann Vals eftir leik í N1 höllinni. Kári hefur verið meiddur nánast allt tímabilið, en hann segist ekki viss hvort hann muni ná að taka einhvern þátt í lokaeinvíginu gegn Grindavík.