spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaSara Rún og Faenza máttu þola tap gegn San Martino

Sara Rún og Faenza máttu þola tap gegn San Martino

Sara Rún Hinriksdóttir og Faenza töpuðu í gærkvöldi fyrir San Martino í ítölsku úrvalsdeildinni, 65-76.

Faenza eru eftir leikinn í 11. sæti deildarinnar með tvo sigra og 9 töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 28 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sara Rún 6 stigum og 3 fráköstum.

Næsti leikur Söru og Faenza í deildinni er þann 18. desember gegn Graf Crema.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -